Motorola kynnir nýjan snjallsíma - Droid Razr

Simon.is safn
ÁhugavertAndroidFréttir

Í gær kynnti Motorola nýjan snjallsíma sem hingað til var kallaður Spyder, Droid HD en fékk á endanum nafnið Droid Razr.

droidrzr2
Mynd: Motorola.com

Helstu eiginleikar:

  • 1.2GHz dual core örgjörvi
  • 4G LTE
  • 1GB vinnsluminni
  • 8 megapixla myndavél sem styður 1080p háskerpu upptöku
  • 4.3" AMOLED qHD skjár
  • 7.1mm á þykkt - einn þynnsti snjallsími í heiminum í dag
Síminn kemur með svokölluðum Webtop möguleika sem gerir notendum kleift að tengja hann við vöggu (dock) og skoða allt efni á stærri skjá. Meðal annars verður hægt að vafra á netinu í gegnum Firefox. Bilið milli snjallsíma, spjald- og fartölva er alltaf að minnka eins og Droid Razr sýnir.
Meet-WEBTOP
Mynd: Motorola.com
Það er nokkuð ljóst að það er ekki skortur á 4.3" Android snjallsímum á markaðnum í dag. Motorola Droid Razr er væntanlegur á markað í nóvember allstaðar í heiminum.
Heimildir:
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram