Amazon blandaði sér á spjaldtölvumarkaðinn í dag þegar þeir kynntu Amazona Kindle Fire. Hingað til hefur Amazon aðeins selt Kindle rafbókarlesara með svarthvítum "e-ink" skjá en bjóða nú upp á spjaldtölvu sem keyrir á Android stýrikerfinu og skartar 7" litaskjá. Það ótrúlegasta við Kindle Fire er verðið - $199 sem er um 24.000 kr.
Kindle Fire er kannski ekki sambærileg við iPad 2 frá Apple því innvolsið í Amazon töflunni er alveg í samræmi við verðið. Það er engin myndavél, það er ekki hægt að tengjast 3G eða í gegnum bluetooth og geymsluplássið er aðeins 8GB. Geymsluplássið skiptir kannski minna máli í dag heldur en það gerði fyrir nokkrum árum síðan því mikið af tækjum í dag tengjast skýþjónustum sem er einmitt það sem Amazon hefur einblínt mikið á að undanförnu. Allt efni sem þú kaupir frá Amazon er geymt á netinu, eða í skýinu.
Helstu eiginleikar:
