Eins og margir vita þá hefur Microsoft tilkynnt að Windows Live Messenger þjónusta fyrirtækisins, MSN, verði hluti af Skype sem er ein vinsælasta samskiptaþjónusta heims. Þetta var staðfest í fyrra og á Skype blogginu kom fram að Microsoft hyggðist sameina þessar þjónustur í eina.
Samruninn hófst í oktober 2012 þegar sjötta útgáfa af Skype var gefin út fyrir Windows og Mac OS X en þá var í fyrsta skipti hægt að skrá sig inn á Skype með Microsoft reikning. Windows Live tengiliðir ættu því að birtast í Skype hjá þeim notendum sem eru búnir að uppfæra Skype og skrá sig inn með MSN auðkenni.
Microsoft á Íslandi hefur tekið saman leiðbeiningar hvernig best sé að færa MSN tengiliði yfir á Skype en þetta er mjög einfallt eins og sést hér.

Af þessu tilefni spurðum við notendur á Facebook síðu Simon.is hvaða samskiptaþjónustu (instant messaging) þeir notuðu mest og það virðist sem Facebook Messages sé lang vinsælasta þjónustan. Skype og MSN eru í öðru og þriðja sæti og því áhugavert að sjá hvaða áhrif þessi sameining hefur á spjallþjónustur Microsoft.
Heimild
Skype
Fyrst birt 7. nóvember 2012 og hér aftur með uppfærslum