Nú styttist í að flest Windows Phone 7 símtæki fái uppfærslu, sem verður líklega síðasta stóra uppfærslan fyrir útgáfu 7. Það voru margir WP7 notendur óánægðir þegar fréttir bárust af því að WP8 muni ekki koma til með að ganga á WP7 símtækin. Þessi óánægja er nokkuð skiljanleg en að sama skapi skiljanleg ákvörðun hjá Microsoft þar sem vélbúnaðurinn á eldri símum keyrir WP8 illa eða alls ekki.
Microsoft byrjaði að rúlla út þessari útgáfu í lok síðasta árs og reikna fréttamiðlar almennt með að þessi útgáfa verði aðgengileg hér á Íslandi þann 31. janúar. Eigendur WP7 síma eru því hvattir til þess að fylgjast með því hvort að uppfærslan detti inn í Zune í kringum mánaðarmótin.
Mynd af Gsmarena
Það eru margar undirliggjandi breytingar í þessari uppfærslu en þessar koma notendur til með að sjá
Þetta er ekki tæmandi upptalning en ljóst er að margir bíða þessari uppfærslu með mikilli tilhlökkun