Allar vörur eiga sinn líftíma hjá framleiðendum og er Microsoft engin undanteknir þar á. Nýlega fundu menn upplýsingar um líftíma Windows Phone á heimasíðu Microsoft, en þar kemur fram kemur að Microsoft styður að fullu WP7/WP8 í 18 mánuði eftir að líftími kerfisins hefst.
Þetta hefur vakið mikla athygli síðustu daga þó svo Microsoft hafi sagt frá þessu við nokkur tækifæri allar götur síðan Windows Phone 7 kom á markað.
Windows Phone 7
Það var mikil óænægja með að ekki væri hægt að uppfæra Windows Phone 7 í Windows Phone 8 og er sú óánægja nokkuð skiljanleg. Windows Phone 7.8 er engu að síður nokkuð stór uppfærsla sem er að fullu stutt þangað til í september 2014, af því gefnu að það komi ekki önnur stór uppfærsla fyrir Windows Phone 7
Það er því orðið ljóst að Windows Phone 7 er með fullan uppfærslu- og öryggisstuðning frá Microsoft í hið minnsta tæplega 4 árum eftir að kerfið kemur á markað.
Windows Phone 8
Telja má mjög líklegt að Microsoft komi með uppfærslu sem endurnýjar líftíma Windows Phone 8 stýrikerfisins en talað hefur verið um Windows Phone 8.5/9 eða jafnvel Windows Phone Blue seinna á þessu ári.