Samsung hefur lekið út myndum og tækniupplýsingum af næstu kynslóð Galaxy Gear snjallúrsins sem kallast einfaldlega Gear 2. Upphaflega stóð til að afhjúpa Gear 2 á Mobile World Congress síðar í dag, en ljóst er að þeir hafa hreinlega ekki getað haldið þessu leyndu.

Úrið verður fáanlegt í tveimur útgáfum, Gear 2 og Gear 2 Neo. Munurinn á þessum útgáfum felst aðallega í myndavélinni. Neo-útgáfan er ekki með myndavél, er léttara og kemur til með að vera nokkuð ódýrara en Gear 2.
Athygli vekur að Android stýrikerfið er ekki notað í nýju úrin en því hefur verið skipt út fyrir Tizen stýrikerfið. Það þykir vera skref í átt að því að gera Samsung snjallækin minna háð Android og Google, en Samsung hefur lýst því yfir að þeir vilji færa sig meira í þá áttina.
Helstu upplýsingar:
Myndavélin (á ekki við um Neo-útgáfuna):
Frekari tækniupplýsingar má nálgast hér.

Heimild: Know Your Mobile