300 Microsoft kaupir Blizzard og frábær CES sýning

Þá er Tæknivarpið loksins komið í rútínu og við fáum fyrsta fréttaþáttinn. Orion Sentry er eitt fyrsta íslenska Mac appið í langan tíma og reynir að koma í veg fyrir þjófnað á tölvum. Fjarskipta vinnur í því að gera háhraðanet á þjóðvegum að kröfu. Vivaldi vafrinn er nú í boði á Astro Slide 5G nördasímanum. Það var brotist inn í tölvukerfi Strætó og þau ákváðu að borga ekki lausnargjald fyrir gögnin. CS:GO úrvalsdeild RÍSÍ heitir núna Ljósleiðaradeildinn. CES sýningin var í byrjun árs og telja gárungar að þetta sé líklega sú besta í mjög langan tíma. Við förum yfir það helsta þaðan eins og 55” tölvuskjá frá Samsung, 42” OLED sem sló í gegn og Freestyle skjávarpa sem er hægt að skrúfa upp í ljós. Stærsta frétt vikunnar er svo kaup Microsoft á Activision Blizzard fyrirtækinu upp fyrir fáranlega háa upphæð. 

Þessi þáttur er í boði Macland og Elko.

Stjórnendur eru Atli Stefán og Elmar Torfason

linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram