313 Reykjavík Haus sköpunarsetur og Sony Linkbuds

Reykjavík Haus hefur verið samþykkt í borgarráði Reykjavíkur og mun opna sköpunarsetur í efri hæðum Hafnarhússins. Evrópusambandið er að búið að senda ákvörðun á Apple um meinta misnotkun á aðgengi þriðja aðila að NFC-hluta iPhone síma og getur sektað Apple um 10% af heildartekjum. Xbox prik er á leiðinni sem mun bjóða upp á sjónvarpsstreymiapp og leikjastreymispilun, og kemur vonandi út innan 12 mánaða. Fortnite er loksins hægt að spila, en í gegnum Xbox cloud gaming (sem er ekki í boði á Islandi). Google bjó til sveigjanlega útgáfu af Robot (flex) letrinu sínu, sem er hægt að stilla í döðlur. Wendy’s ætlar að opna aftur á Íslandi er kominn með mjög skondinn Twitter aðgang. Sennheiser Momentum Truly Wireless 3s létta og gera fyrri útgáfu ódýrari. Sony WH-1000XM5 mikið endurnýjuð heyrnatól koma líklega út 12. maí næstkomandi. Það er langt í næstu sendingu af Snap Pixy drónanum, sem virðist hafa fengið góðar viðtökur. Atli fjallar um Sony Linkbuds heyrnatólin sem eru alveg þráðlaus heyrnatól sem fara EKKI inn í eyrun. Sala á Chromebook tölvum hrynur um 60% og Apple seldi mest af tölvum (og spjaldtölvum) á síðasta ársfjórðungi.

Þessi þáttur er í Macland sem selur tækin sem við elskum.

Stjórnendur eru Atli Stefán og Elmar Torfason.

linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram