Fyrstu myndir af iPad 5 leka?

Simon.is safn
ÁhugavertAppleFréttiriPadspjaldtölvur

ipad5-3

 

Í umræðunni undanfarið hafa verið orðrómar um það hvort að Apple muni gefa út fimmtu kynslóð iPad spjaldtölvunar seinna á þessu ári. Nú hafa lekið óstaðfestar myndir líkt og áður frá parti sem talið er að verði notaður í nýjustu spjaldtölvu Apple.

Talið er að myndirnar komi frá partaframleiðanda Apple í Kína og samkvæmt myndunum lítur út fyrir að apple sé að fara að gefa út 9,7" spjaldtölvu sem er 0,2" stærri en fyrri kynslóð.

 

ipad5-2

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Við fyrstu sýn þá sjáum við eftirfarandi:

  • Hulstrið er þynnra en gengur og gerist
  • Við sjáum rúnaðari kanta á hulstrinu
  • Talið er að útgáfan muni innihalda LTE en það sést op fyrir loftnetið í spjaldinu

Það er ekki komið alveg á hreint hvort að þessar myndir séu ekta en það er mjög líklegt að svo sé.

Talið ar að þegar svona myndir leka út þá gætum við átt von á ca. 5 mánuðum þangað til að hönnunin verði send í verslanir.

Það er eins gott að byrja að spara því það er stutt í að við fáum að sjá nýja Apple spjaldtölvu árið 2013.

ipad59to5mac

Heimild: 9to5mac.com

linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram