Android 4.0 stýrikerfið, sem simon.is hefur fjallað um og fékk gælunafnið Ice Cream Sandwich, er nú handan við hornið. Galaxy Nexus síminn kemur út í Evrópu 17. nóvember verður fyrsti síminn sem skartar stýrikerfinu og í kjölfarið á því verður öðrum símaframleiðendum gert kleyft að gefa ICS út á sína síma.
Forsvarsmenn Google hafa sagt að ICS eigi fræðilega að virka á öllum símum sem hafa fengið Android 2.3 uppfærsluna. Þá hafa símaframleiðendur verið gagnrýndir hingað til fyrir að hætta snemma að gefa út uppfærslur á símana sem þeir framleiða, þannig að það verður spennandi að sjá hvaða símar fá þessa uppfærslu.
Sumir framleiðendur hafa strax gefið út hvaða símar munu fá uppfærsluna og hefur Engadget tekið saman lista sem sést hér fyrir neðan. Enginn treystir sér til að gefa út nánari tímasetningu á uppfærslunum fyrr en snemma árs 2012.
ASUS
Fá uppfærslu:
Fá ekki uppfærslu:
HTC
Fá uppfærslu:
Fá ekki uppfærslu:
LG
Fá uppfærslu:
Fá ekki uppfærslu:
Meizu
Fá uppfærslu:
Fá ekki uppfærslu:
Motorola
Fá uppfærslu:
Fá ekki uppfærslu:
Samsung
Fá uppfærslu:
Fá ekki uppfærslu:
Sony Ericsson
Fá uppfærslu:
Fá ekki uppfærslu:
Heimildir: Engadget #1 Engadget #2 GSMArena