Eins og við höfum áður fjallað um þá er Nokia Lumia 800 væntanlegur til landsins en nú er loksins búið að staðfesta að hann komi í sölu 2. mars. Nokia Lumia 800 er fyrsti snjallsíminn frá Nokia sem keyrir Windows Phone stýrikerfið frá Microsoft (WP7). Einn af kostunum við stýrikerfið er að það er samþætt samfélagsmiðlum eins og Facebook, Twitter, LinkedIn en einnig ýmsum þjónustum frá Microsoft eins og Xbox-live og fyrirtækjalausnir á borð við Exchange, Outlook, Office, Sharepoint og Lync. Nokia hefur einnig samþætt korta- og leiðsagnarkerfið sitt við Windows Phone, sem býður notendum upp á ókeypis GPS kort af Íslandi, og öllum heiminum. Hægt er að skoða ítarlega umfjöllun okkar um Windows Phone hér.
Helstu eiginleikar: