Breyttu snjallsímanum í stafræna smásjá á einfaldan hátt

Simon.is safn
ÁhugavertAukahlutir

Með snjallsíma er hægt að gera svo mikið meira en að hringja símtöl og senda sms. Við rákumst á þessa leiðbeiningar hjá Instructables um hvernig nota má snjallsímann sem stafræna smásjá, á ódýran og einfaldan hátt.

Búnaðurinn í heild sinni. Mynd: instructables.com

Það sem til þarf er viðarplata, þrír langir boltar, nokkrar rær og flugurær, leiser-bendir, vasaljós og plexigler. Að auki þarf borvél og bora til að setja þetta saman. Nánari leiðbeiningar má sjá í meðfylgjandi myndskeiði og á heimasíðu Instructables.

saltkorn
Saltkorn séð gegnum smásjánna með 40x stækkun. Mynd: instructables.com

Við hjá Simon.is höfum ekki prufað þetta en stefnum á að gera það við tækifæri. Ef það er einhver þarna úti sem prufar að búa til svona græju þá má viðkomandi endilega senda okkur línu og segja okkur hvernig til tókst.

Sjá ítarlegar leiðbeiningar á vefsíðu Instructables: instructables.com

linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram