Jólagjafalisti Simon

Simon.is safn
Fréttir

Hó hó hó, gleðileg jól! Hér er að finna jólagjafalista Simon.is. Við skiptum honum upp í dýrari snjallsíma, aðeins ódýrari snjallsíma og svo bestu spjaldtölvurnar. Þetta eru skoðanir okkar í hópnum eftir innri umræðu, sem og stutta netkosningu á Facebook. Samsung Galaxy S3 fékk reyndar að fjúka fyrir Galaxy Note 2, sem okkur finnst mun meira spennandi Galaxy sími.

Snjallsímar í dýrari kantinum

iphone5

Apple iPhone 5

iPhone 5 er vinsælasti sími heims og selst í milljónum eintaka. Hann gerir allt sem þú vilt og talar við þig ef þér leiðist. Fallegur, góð myndavél, fín hleðsla, geðveikur skjár en rándýr. Hann fékk okkar hæstu einkunn á sínum tíma. Síminn er til í karlmennlegum svörtum og kvenlegum hvítum. Þitt er valið.

Nexus 4_0000_Product Image(4)_Nexus4_Range shot04LG Nexus 4

Hreinræktaður Android snjallsími sem er sá hraðasti í dag. Síminn kemur klæddur bak og fyrir í Gorilla Glass hertu gleri og glansandi bakhlið. Hann styður þráðlausa hleðslu og mun bjóða upp á uppfærslur frá Google strax og þær koma. Hann er þar að auki mun ódýrari en samkeppnisaðilar sínir.

samsung-galaxy-note-2_1346316413

Samsung Galaxy Note 2

Stór, stærri... stærstur. Note 2 er risastór, en það virkar. Skjárinn er gullfallegur 5,5" háskerpuskjár með sterkum litum. Aragrúi af flottum fídusum í stýrikerfinu gera símann að þeirri snilld sem hann casino jameshallison er. Síminn býður upp á auka pláss í gegnum SD kort sem að hinir í þessum flokki gera ekki.

nokia-lumia-920-color-rangeNokia Lumia 920

Geðveik myndavél, þráðlaus hleðsla, frábær skjár og brakandi fersk útgáfa af Windows Phone. Síminn er með fljótandi linsu sem gerir þér kleift að taka myndir í miklu myrki og hristiver myndbandsupptöku. Er Nokia loksins búið að búa til samkeppnishæfan snjallsíma?

Aðeins ódýrari snjallsímar

LG-Optimus-L9LG Optimus L9

Optimus L9 er með 4,7" skjá með flottri upplausn (qHD) og góðu innvolsi á rugl verði. Hann er með tvíkjarna örgjörva og 1GB í vinnsluminni. Hann keyrir því öll öpp eins og vindurinn. Aðrir símar í sama verðflokki blikna í samanburði og við hikum ekki við að mæla með honum. Síminn er sérstaklega aðlaðandi í hvítum lit.

440x330-samsung-galaxy-ace-2-main

Samsung Galaxy Ace 2

Þessi sími kom okkur skemmtilega á óvart. Hann er lítill og nettur á góðu verði, en svínvirkar. Síminn kemur með flottum 3,7"  skjá sem er bjartur og litríkur. Síminn hentar vel fyrir snjallsímabyrjendur og litla fólkið.

samsung-Galaxy-s-2_16b703

Samsung Galaxy S2

Galaxy S2 lifir enn góðu lífi og var auðvitað sími ársins hjá Simon 2011. Hann er enn að fá uppfærslur og er á fínu verði hjá nokkrum söluaðilum. Það er einnig mjög sniðugt að kaupa S2 notaðan ef hann er vel farinn.

Bestu spjaldtölvurnar

ipad-mini-pressiPad mini 16GB

iPad mini er skemmtileg og nothæf spjaldtölva. Hún fer mun betur í hendi en stóri bróðir sinn og það er auðvelt að ferðast með hana. Ofan á það þá er hún á mjög góðu verði, sem er sjaldan sagt um vörur frá Apple.. Mini fær einnig glimrandi dóma frá Simon.

Google-Nexus-7Google nexus 7 32GB

Við elskum nexus 7. Þú getur fengið 32GB nexus 7 á sama verði og iPad mini 16GB. Hún er þægilegri í hendi en iPad mini, með hærri upplausn, betri örgjörva en aðeins minni skjá. Þetta er besta Android spjaldtölvan í boði og á fínu verði hér heima (tl.is).

apple-ipad4-wifi-blk-um_3_1_1iPad retina 16GB

Þróaðasta spjaldtölvan á markaðinum. Flottasti skjárinn, hraðasta spjaldtölvan, flest öpp og mest af aukabúnaði í boði (já, það skiptir máli). Frábær í að lesa með, passa börn og spila leiki.

linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram